Með Google töflureiknum geturðu búið til töflureikna og unnið með þá í samstarfi við aðra, hvar sem þú ert. Og það kostar ekki krónu.
Opna Google töflureikna Sækja Google töflureiknaGoogle töflureiknar sem þú þekkir svo vel, nú með auknu öryggi og eftirliti fyrir hópa.
Nánari upplýsingarGoogle töflureiknar gefa kost á litríkum töflum og myndritum. Innbyggðar formúlur, pivot-töflur og valkostir fyrir skilyrt snið spara þér tíma og einfalda algeng verk í töflureiknum. Og allt er þetta ókeypis.
Þú hefur aðgang að töflureiknunum þínum og getur búið til nýja og breytt þeim hvar sem þú ert – í símanum, spjaldtölvunni eða tölvunni, jafnvel þegar engin nettenging er til staðar
Sækja Google töflureiknaAllar breytingar sem þú gerir eru sjálfkrafa vistaðar um leið og þú skrifar. Þú getur jafnvel notað breytingaferilinn til að sjá gamlar útgáfur af sama töflureikninum, raðað eftir dagsetningu og því hver breytti.
Notaðu svæðið Kanna til að fá yfirsýn yfir gögnin þín með vali um allt frá upplýsandi samantekt yfir í úrval forútfylltra myndrita.
Fáðu ennþá meira út úr töflureiknum með því að nota viðbætur. Prófaðu viðbótina Styles til að gera næsta töflureikni enn fegurri fyrir augað.
Sjáðu hvað annað er í boðiTöflureiknarnir fylgja þér hvert sem er. Búðu bara til töflureikni í vafranum eða sæktu forritið fyrir fartækið þitt.
Sækja Google töflureikna