Safnaðu upplýsingum í eins miklu magni og þú þarft og skipuleggðu þær með Google eyðublöðum. Og það kostar ekki krónu.
Opna Google eyðublöð Opna Google eyðublöðGoogle eyðublöð sem þú þekkir svo vel, nú með auknu öryggi og eftirliti fyrir hópa.
Nánari upplýsingarSkipuleggðu næstu útilegu, fylgstu með skráningu á viðburð, hentu upp stuttri könnun, safnaðu netföngum fyrir fréttabréf, búðu til spurningaleik og margt, margt fleira.
Notaðu þína eigin mynd eða merki og þá velja Eyðublöð réttu litina sem passa við eyðublaðið þitt, eða þú getur valið úr sérvöldum þemum til að gefa tóninn.
Veldu úr fjölda spurningavalkosta, allt frá krossaspurningum yfir í fellivalmyndir og línulega skala. Bættu við myndum og YouTube myndskeiðum eða farðu út í flottheit á borð við að sleppa úr síðum út frá svörun.
Eyðublöð laga sig að aðstæðum svo auðvelt er að búa til, breyta og svara eyðublöðum, sama hvort skjárinn er stór eða lítill – og þau líta líka vel út.
Svörum við könnunum er raðað á snyrtilegan og sjálfvirkan hátt upp í Eyðublöðum og upplýsingar um svör og töflur eru í boði í rauntíma. Þú getur líka farið lengra með gögnin með því að skoða þau í Töflureiknum.
Viltu demba þér í að búa til fyrstu könnunina? Það er ókeypis og auðvelt með Google eyðublöðum.
Opna Google eyðublöð